Sigur Rós í besta viðtali í heimi!

Það hafa nú bara allir gott af því að hlusta á Sigur Rós. Ég var að "horfa" á útvarpsviðtal sem þeir fóru í á YouTube: Sigur Ros on NPR's Bryant Park Project og mér fannst alveg brill að sjá hvernig þeir svöruðu spurningum útvarpsmannsins. Af öllum spurningarháttum þá endaði útvarpsmaðurinn oft á spurningunum með já/nei svarmöguleika. Verðið helst bara að horfa á þetta. Ef það ætti að taka saman í % hversu mikið spyrjandinn talaði og hversu mikið Sigur Rós talaði þá væri það svona 80% spyrjandi, 20% Sigur Rós.

Enýhú...þá er komið að næsta Prison Break þætti. Spoiler: Það er búið að afhausa lækninn. 


Blogg á innan við mínútu

ÉG ætla að prófa hið ómögulega að skrifa svaka stórt blogg á innan við mínútu. Ég hef enn ekki hugmynd um hvað ég ætla að skrifa svo þetta verður hugsanlegabara ekki neitt merkilegt. Enn er ekkert komið í kollinn á mér...ekki ennþá, bíddu kannski núna. Nei! dísus hvað þetta er mega heimsktulegt blogg. Tíminn alveg að verða búinn. 15 sek eftir. Íslenska landsliðið í fótbolta ætti að snúa sér að bocha....tíminn búinn!

Tilraun til bloggunar #57

Það er nú alveg ótrúlegt hvað hægt er að vera með mikið ógeð á bloggi. Þetta er sko ekki í fyrsta skiptið sem ég hef byrjað blogsíðu en helvítið hafi það nú skal hún haldast uppi. Ég ætlar að reyna að vera duglegur að skrá hér inn athugasemdir um klæðaburð fólks í Innlit/Útliti (einmitt....EKKI!)  Reynið bara að fylgjast með því þema bloggsins verður ákveðið "onthego"

 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband